Ábendingar um verkefni fyrir sumarstarfsfólk
Í sumar verða um 300 sumarstarfsmenn hjá Garðabæ sem eru tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að fegra og bæta bæinn okkar.
Íbúar eru hvattir til að senda inn ábendingar um verkefni handa sumarfólkinu.
Þau geta t.d. verið:
• Tengd markmiðinu um snyrtilegasta bæinn
• Veggjakrot sem þarf að hreinsa
• Viðhald á eigum bæjarins
• Almenn umhirða í bæjarlandinu