Sýning Auðar Marinósdóttur
Sýningin opnaði laugardaginn 28. nóvember nk. og stóð til 6. desember. Sýningin nefndist NÁTTÚRAN.
Um listamanninn:
AUÐUR MARINÓSDÓTTIR er fædd og uppalin í Reykjavík. Alla tíð hefur Auði þótt skemmtilegt að teikna og sem dæmi um það sótti hún námskeið í módelteikningu hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur aðeins 12 ára gömul. Árið 1990 fór Auður að fást við vatnsliti en myndlistin hófst ekki af alvöru fyrr en 1996 þegar hún fór í Myndlistaskóla Kópavogs.
Þar sótti hún mörg námskeið allt til ársins 2003, m.a. vatnslitanámskeið hjá Erlu Sigurðardóttir og síðan módelteikningu, olíu, portrett og módelmálun.
Sýningar:
Staðarskálinn í Hrútafirði 1998
Lóuhreiður 2001 og 2005
Sparisjóður Hafnarfjarðar 2001 og 2004
(Samsýning listamanna í Garðabæ )
Gallerí List 2007
Göngugötunni í Garðabæ og útisýningu á Jónsmessunni sem haldin var á Sjálandinu í Garðabæ (Samsýning listamanna í Garðabæ)