Leit

Leitarvél

Daggæsla barna í heimahúsum


Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum. Starfstími er virka daga og er dvalartími barna mismunandi en aldrei lengri en 9 tímar í senn.

Listi yfir starfandi dagforeldra í Garðabæ.

Garðabær greiðir niður gæslu barna úr Garðabæ hjá dagforeldri. Markmiðið er að gera vistun hjá dagforeldri að raunverulegum valkosti fyrir foreldra ungra barna með því að kostnaður við hana verði sá sami og við leikskóladvöl.

Dagforeldrar eiga rétt á greiðslu til að bæta aðstöðu á heimilum sínum með tilliti til þarfa og öryggis þeirra barna sem þeir vista.

Reglur um vistun barna hjá dagforeldrum - upplýsingar til foreldra

Reglur um aðstöðugreiðslur til dagforeldra

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum

Eyðublöð vegna vistunar barna hjá dagforeldrum

Foreldrar barna eldri en eins árs, sem eru á biðlista eftir leikskóla og ekki í annarri niðurgreiddri dagvistun, geta einnig sótt um greiðslur þar til barninu býðst leikskólavist. Greiðslan nemur 11.000 krónum fyrir hvert barn. Eyðublöð til að sækja um þessar greiðslur eru á vefnum.

Upplýsingar veitir:
Anna Magnea Hreinsdóttir, leikskólafulltrúi,
sími 525 8542 (525 8500),
netfang: annah@gardabaer.is 

Systkinaafsláttur

Ef fleiri en eitt barn eru í dvöl á leikskóla, í tómstundaheimili eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið.

Upplýsingar um systkinaafslátt.

Umsóknareyðublað um systkinaafslátt er á Mínum Garðabæ.

Viltu skapa þér atvinnu?

Upplýsingar um starf sem dagforeldri

Sjá einnig:

Leikskólar í Garðabæ
Tómstundaheimili/gæsla í grunnskólum
 
  
 


 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi