Leit

Leitarvél

Fræðslu- og menningarsvið

Fræðslu- og menningarsvið nær yfir málefni daggæslu, leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttamál, æskulýðs- og tómstundamál unglinga og aldraðra, menningarmál,  og vinnuskóla.

Heildstæð skólastefna fyrir Garðabæ

Forstöðumaður er Margrét Björk Svavarsdóttir
netfang: margretsv@gardabaer.is

Sálfræðingar hafa aðsetur á bæjarskrifstofum en eru líka með viðtalstíma í leik- og grunnskólum. Sálfræðingar vinna að forvarnastarfi í samvinnu við starfsmenn skóla meðal annars með kennslufræðilegum og sálfræðilegum athugunum og greiningu á nemendum sem eiga í erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra.

Deildarstjóri skóladeildar hefur eftirlit með framkvæmd skólastarfs í grunnskólum og tónlistarskóla.

Leikskólafulltrúi hefur eftirlit með framkvæmd skólastarfs í leikskóla.

Talmeinafræðingar hafa aðsetur á bæjarskrifstofum. Þeir sinna greiningu vegna málþroskaraskana og framburðarerfiðleika barna í leik- og grunnskólum og veita foreldrum og starfsfólki skólanna ráðgjöf.

Sérkennslufulltrúi leikskóla hefur aðsetur á bæjarskrifstofunum. Hann hefur yfirumsjón með sérkennslu í leikskólunum í Garðabæ og annast faglega ráðgjöf til starfsfólks og foreldra barna í öllum leikskólunum. Sérkennslufulltrúi sinnir frumgreiningu á frávikum leikskólabarna.

 

Eyðublað til að sækja um athugun og ráðgjöf frá sérfræðiþjónustu grunnskóla er á eyðublaðasíðunni undir Skóli og frístundir.

 

 

 

 

Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.
Hefjumst handa - Garðabær snyrtilegasti bærinn
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi