Leit

Leitarvél

Rammi um starfsemi tómstundaheimila í grunnskólum Garðabæjar.

1.  Hlutverk tómstundaheimila grunnskólanna

  • Tómstundaheimili er tilboð sem er hluti af starfi viðkomandi skóla og fylgir heildarstefnu hans.
  • Á tómstundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt starf fyrir nemendur þegar lögbundinnni dagskrá grunnskólans er lokið.
  • Í daglegu starfi er ------------- haft að leiðarljósi þar sem ----------- / Þetta sé mótað innan hvers skóla með hliðsjón af heildarstefnu hans og þeim áherslum sem hann vill halda á lofti.
2.  Starfstími
  • Starfstími tómstundaheimila miðast við skólaárið eins og það er hverju sinni og kemur fram á starfsdagatali.
  • Daglegur opnunartími er frá því að kennslu barna bekk lýkur á daginn til kl. 17:15.
  • Í jóla- páska- og vetrarfríi eru tómstundaheimilin opin allan daginn á virkum dögum nema aðfangadag og gamlaársdag (sbr. opnun leikskóla í Garðabæ). Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga. Þetta skal kynnt bæði bréflega og í tölvupósti öllum foreldrum barna með 3 vikna fyrirvara. Skrá skal börnin með minnst 10 daga fyrirvara. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Sérstaklega þarf að greiða fyrir dvöl fyrri hluta dags hjá þeim börnum sem eru skráð til dvalar eftir skólatíma.
  • Á starfsdögum kennara og þá daga sem kennsla fellur niður vegna foreldaraviðtala eru tómstundaheimilin opin allan daginn. Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga. Þetta skal kynnt bæði bréflega og í tölvupósti öllum foreldrum barna með 3 vikna fyrirvara. Skrá skal börnin með minnst 10 daga fyrirvara. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Sérstaklega þarf að greiða fyrir dvöl fyrri hluta dags hjá þeim börnum sem eru skráð til dvalar eftir skólatíma.
  • Gert er ráð fyrir samstarfi tómstundaheimilanna t.d. í jóla-, páska- og vetrarfríi sem og á starfsdögum og foreldradögum.
3.  Skráning
  • Forskráning fer fram að vori um leið og innritun í skóla. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofum skólanna, á tómstundaheimilium og á vef garðabæjar www.gardabaer.is.
  • Að jafnaði skal skrá börn að vori á tómstundaheimili fyrir næsta skólaár.
  • Lögð er áhersla á að allir sem óska eftir dvöl fyrir barn sitt fái þjónustu.
  • Staðfest skráning gildir fyrir allt skólaárið. Allar breytingar á dvalartíma þarf að tilkynna fyrir 20. hvers mánaðar og taka þá breytingar gildi fyrir næsta mánuð.
  • Foreldrum berst staðfesting á vorskráningu um leið og innheimt er fyrir 1. tímabil það er ágúst –september .
4. Gjaldskrá
  • Gjald fyrir dvöl á tómstundaheimili og fyrir heimanám fer eftir samþykkt bæjarstjórnar á hverjum tíma.
  • Gjaldskrá er auglýst á vef Garðabæjar og skal einnig vera hægt að nálgast hana með krækju á vef hvers skóla.
  • Gjaldskrá er byggð upp á 10 klst. flokkum með jafnri greiðslu fyrir hverja klst.
  • Gert er ráð fyrir að tekjur standi undir rekstri tómstundaheimilanna.
  • Á 1. tímabili það er ágúst- september og síðasta tímabili það er maí-júní er innheimt 1,25 mánaðargjald. Frá október-apríl er innheimt slétt mánaðargjald.
5.  Starfið
  • Aðstoð við heimanám er hluti af dagskrá barnanna á tómstundaheimilunum og ekki skal greiða sérstaklega fyrir hana.
  • Öðrum nemendum skólans sem ekki eru á tómstundaheimilunum skal standa til boða aðstoð við heimanám gegn gjaldi. Þessi þjónusta skal helst standa til boða 3x í viku eina klst í senn. Æskilegt er að kennari sinni þessu starfi.
  • Boðið er upp á tómstundastarf/-námskeið fyrir alla nemendur skólans eftir skólatíma.
  • Börn á tómstundaheimili skulu eiga kost á síðdegishressingu. Verð skal standa undir kostnaði.
  • Nánari útfærsla á dagskrá er í höndum hvers skóla og tómstundaheimilis.
6.  Umsjónarmenn
  • Umsjónarmaður tómstundaheimilis skal hafa háskólamenntun á uppeldissviði eða sambærilega reynslu og/eða menntun.
  • Umsjónarmaður sér um skráningu dvalartíma einstakra barna, útreikning gjalda og skilar upplýsingum til innheimtufulltúa á bæjarskrifstofum.
  • Upplýsingar um vorskráningu skulu berst innheimtufulltrúa á bæjarskrifstofum fyrir 20. júní þannig að hægt sé að senda foreldrum innheimtuseðla í júlí.
  • Ráðningu starfsmanna fyrir næsta starfsár skal  að lágmarki miða við fjölda skráninga 20. júní.
  • Umsjónarmaður hefur tengsl við forráðmenn barnanna í gegnum fjölskylduvefinn á svipaðan hátt og umsjónarkennarar. Í gegnum þann miðil eru forráðmenn upplýstir um starfsemi liðinnar viku og dagskrá næstu viku ásamt öðrum ganglegum upplýsingum
7.  Starfsmenn
  • Við lágmarksstarfsemi á tómstundaheimilum þarf að jafnaði 2 starfsmenn.
  • Miðað er við að hver starfsmaður þar með talið umsjónarmaður sjái um 12 börn að jafnaði.
  • Æskilegt er að starfsmenn séu með fjölbreytta reynslu og ólíkan bakgrunn. Einnig að haft verði að leiðarljósi að sem jafnast kynjahlutfall sé í röðum starfsmanna.
  • Starfsmenn tómstundaheimilis eru virkir þátttakendur í leik og starfi barnanna.
  • Starfsmönnum skal standa  til boða símenntun samkvæmt símenntunaráætlun hvers skóla.
  • Tómstundaheimili og starfsmenn þess heyra undir skólastjóra.
8.  Húsnæði
  • Í hverjum skóla er haft samráð um samnýtingu á húsnæði sem ekki er í notkun hverju sinni svo sem almennar kennslustofur, sérgreinastofur, íþróttasal, hátíðar- og matsal og húsnæði tómstundaheimilis.
  • Tómstundaheimili Flataskóla starfar í húsnæði skólans með aðgangi að aðstöðu í kennsluhúsnæði skólans eftir því sem þörf krefur í samráði við skólastjóra.
  • Tómstundaheimili Hofsstaðaskóla starfar í Mýrinni, íþróttahúsi í Hofsstaðamýri með aðgang að aðstöðu í kennsluhúsnæði skólans eftir því sem þörf krefur í samráði við skólastjóra. Gert er ráð fyrir samnýtingu á veitingarými Mýrarinnar þar sem hluti starfs tómstundaheimilis fer fram þegar það er ekki starfandi.
  • Tómstundaheimili Sjálandsskóla starfar í húsnæði skólans með aðgangi að aðstöðu í kennsluhúsnæði skólans eftir því sem þörf krefur í samráði við skólastjóra.
9.  Foreldrar
  • Umsjónarmaður hefur vikulegan viðtalstíma sem auglýstur er og kynntur foreldrum barnanna.
  • Forráðamönnum barnanna berast reglulega upplýsingar um starf tómstundaheimila í fréttabréfi og með tölvupósti gegnum fjölskylduvefinn Mentor. Á vef skólanna er krækja inn á vef tómstundaheimilanna. Þar er meðal annars hægt að sjá myndir úr starfinu.

10.  Öryggismál

  • Við lágmarksstarfsemi á tómstundaheimilum þarf að jafnaði 2 starfsmenn.
  • Starfsmenn tómstundaheimila fá reglulega fræðslu um öryggismál, slys og forvarnir eins og aðrir starfsmenn skólanna.
  • Alltaf skal hafa samband við foreldra/forráðamenn ef slys ber að höndum.

11.  Sértækur stuðningur

  • Nemendur njóta stuðnings ef þörf krefur samkvæmt mati í hverju tilviki.
     
 

Grunnskólar


Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi