Reglur um innritun barna í leikskóla Garðabæjar
Umsókn
Sækja þarf um leikskóladvöl fyrir barn, sem þá er skráð á biðlista eftir aldri þess.
Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að barn eigi lögheimili í Garðabæ, en barnið getur verið á biðlista þótt lögheimili sé annars staðar. Foreldrar sækja um leikskólavist á skólaskrifstofu Garðabæjar eða á vef Garðabæjar. Eyðublöð er einnig hægt að fá á leikskólum, en foreldrar skila sjálfir umsóknum á bæjarskrifstofur Garðabæjar.
Úthlutun /innritun í leikskóla
Leikskólarými býðst þeim börnum sem eru orðin 18 mánaða þann 1. september ár hvert, þegar skólaárið hefst, og eiga lögheimili í Garðabæ. Farið er eftir aldursröð í úthlutun. Systkini hafa forval í þann leikskóla sem eldra systkini er í þegar að úthlutun er komið skv. aldursröð.
Innritun
Foreldrum er sent bréf þegar barn fær leikskóladvöl. Dvöl er háð því skilyrði að foreldri skuldi ekki leikskólagjöld vegna eldra systkinis. Foreldrar hafa 10 daga umhugsunarfrest, eftir það er barnið tekið af biðlista.
Reynt er að tilkynna foreldrum með góðum fyrirvara hvenær barn getur byrjað, en fyrirvarinn getur í undantekningartilvikum orðið minnst tvær vikur. Vilji foreldrar fresta því að taka pláss, geta þeir gert það með því að greiða fyrir plássið.
Forgangur
1. Börn geta fengið forgang, skv. úrskurði leikskólafulltrúa, vegna fötlunar eða félagslegra erfiðleika. Beiðni um forgang þarf að fylgja bréf frá félagsráðgjafa, lækni eða öðrum eftir því sem við á. Forgang vegna fötlunar eða félagslegra erfiðleika er eingöngu hægt að fá vegna aðstæðna barnsins sjálfs.
2. Beiðnir um forgang eru metnar af matsnefnd sem leggur leggur mat á afgreiðslu forgangsumsókna. Í matsnefnd sitja ásamt leikskólafulltrúa, sérkennslufulltrúi, sálfræðingur fræðslu- og menningarsviðs og félagsmálastjóri og fer það eftir eðli máls hverju sinni.
Dvalargjald
Eftirfarandi greiða forgangsgjald (skil á vottorðum til leikskólastjóra er forsenda lækkunar á gjaldi):
Einstæðir foreldrarNámsmenn - ef báðir foreldrar eru í fullu námi
Einstæðir foreldrar framvísa vottorði. Námsmenn framvísa vottorði um skólavist fyrir hverja önn. Foreldrar geta sótt um aðstoð vegna greiðslu dvalargjalda til fjölskyldu- og heilbrigðissviðs vegna fjárhagsvanda sem metinn er af félagsmálaráði.
Uppsagnarfrestur
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við fyrsta eða fimmtánda dag hvers mánaðar. Skuldi foreldrar þrjá mánuði er barninu sagt upp leikskóladvöl.
Samkomulag milli bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu kveður á um að börnum sem flytja milli sveitarfélaganna sé heimilt að vera áfram í leikskóla í því bæjarfélagi sem flutt er úr í allt að sex mánuði frá flutningi lögheimilis, ef ætla má að barnið innritist í leikskóla í nýja bæjarfélaginu innan sex mánaða. Sé barn á lokaári í leikskóla eða það er fatlað og sú þjónusta sem það þarf á að halda er ekki til staðar í nýja bæjarfélaginu geta tímamörk verið rýmri en 6 mánuðir. Nýja bæjarfélagið greiðir kostnað við leikskóladvöl barnsins.
Þessar reglur voru samþykktar af leikskólanefnd 16. október 2003.
Reglurnar tóku gildi 1. nóvember 2003.