Leit

Leitarvél

Þróunarverkefnið leikfélagar

Haustið 2006 hófst verkefnið Leikfélagar fyrir drengi í 9. bekk Garðaskóla. Markmið verkefnisins var að veita drengjum á unglingsaldri tækifæri til að starfa á leikskóla og gefa þeim jákvæða reynslu af starfi með börnum. Slík reynsla gæti síðar aukið líkurnar á því að þeir sæki í slík störf. Einnig var talið að verkefnið yrði til þess að börn í leikskólum fengju tækifæri til þess að umgangast og leika við eldri drengi.

Verkefnisstjóri var í Garðaskóla og í þeim leikskólum sem tóku drengi í verknám. Leitað var eftir samstarfi við Rauða kross Íslands og leikskólakennara varðandi námskeiðahald. Fyrirmynd verkefnisins var sótt til sveitarfélagsins Vallensbæk, í Danmörku.

Skýrsla verkefnisins gefin út vorið 2007 (pdf-skjal)

 

Leikskólar

Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi