Leit

Leitarvél

Almenn markmið með lestrarstefnu Garðabæjar

Skólar  upplýsi foreldra og uppalendur um  mikilvægi lestrar og vekji athygli á hve þáttur þeirra í lestri barna er mikilvægur.

Leiðir:

  • Halda námskeið og kynningarfundi fyrir foreldra þar sem m.a. eru kynntar niðurstöður rannsókna og fjallað um strauma og stefnur í sambandi við lestur.
  • Gefa út bæklinga og birta efni á vefsíðu með upplýsingum um lestur, lestrarkennsluaðferðir og æskilegar lestrarvenjur.
  • Auka aðgengi foreldra að fagaðilum sem geta veitt ráð í sambandi við lestrariðkun barna og ungmenna. 
  • Benda á leiðir sem líklegar eru til að stuðla að jákvæðu viðhorfi og árangri.
Skólar styðji kennara og annað fagfólk sem kemur að lestrarkennslu nemenda.
Leiðir:
  • Gefa kost á fjölbreyttum námskeiðum og kynningarfundum sem tengjast lestri.
  • Styðja við kennara sem áhuga hafa á að tileinka sér nýjungar og fara ótroðnar slóðir í kennslunni
  • Hvetja kennara til að prófa sig áfram með mismunandi kennsluaðferðir. 
  • Hvetja kennara til samvinnu og samstarfs innan skóla sem utan varðandi þróun kennsluaðferða.
Skólar komi til móts við ólíkar þarfir barna með annað móðurmál en íslensku og barna sem dvalið hafa langtímum erlendis.
Leiðir:
  • Meta íslenskukunnáttu barna af erlendum uppruna og kenna þeim íslensku sem annað mál.
  • Hafa aðgengilegar upplýsingar um hvar hægt er að fá kennslu í eigin móðurmáli.
  • Efla þekkingu og færni starfsfólks í menntastofnunum bæjarins á fjölmenningarlegum kennsluháttum. 
  • Hafa aðgengilegar upplýsingar um bókasöfn sem hafa sérhæfðan bókakost til að koma til móts við  móðurmálsþarfir nemenda með annað móðurmál en íslensku á grunn- og framhaldsskólastigi.
  • Þýða mikilvægar upplýsingar um lestur og bókmenntir yfir á erlend tungumál, t.d. upplýsingar á vefsíðum bæjarins. 
Skólar stuðli að aukinni lestrarhæfni barna og ungmenna í Garðabæ og geri þau meðvituð um gildi þess að lesa sér til ánægju.
Leiðir: 
  • Leggja áherslu á að kennarar nýti öll gögn um stöðu og námsárangur barna til að skipuleggja kennslu við hæfi hvers og eins.
  • Leggja áherslu á að kennarar noti  fjölbreyttar matsleiðir.
     
 

Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.

Lestrarstefna


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi