Helstu áhersluatriði í lestrarstefnu Garðabæjar eru:
• Að upplýsa foreldra og uppalendur um mikilvægi lestrar. Að vekja athygli foreldra og uppalenda á hve þáttur þeirra í lestri barna er mikilvægur og hvetja þá til virkrar þátttöku.
• Að stuðla að því að ung börn fái sem mesta málörvun og hvatningu til tjáningar.
• Að skapa umhverfi sem vekur áhuga barna á lestri og gerir þau meðvituð um ritað mál.
• Að styðja kennara og annað fagfólk sem kemur að lestrarkennslu nemenda.
• Að hvert barn fái lestrarkennslu við hæfi frá upphafi skólagöngu.
• Að leggja áherslu á að lestrarframvinda hvers barns sé í samræmi við getu og þroska og börn njóti þess að lesa.
• Að nemendur verði ábyrgir og virkir þátttakendur í eigin námi.
• Að koma til móts við ólíkar þarfir barna með annað móðurmál en íslensku og barna sem dvalið hafa langtímum erlendis.
• Að koma til móts við þau börn og ungmenni sem glíma við lestrarörðugleika af einhverju tagi.
• Að börn og ungmenni í Garðabæ fái ætíð bestu þjónustu og fræðslu sem völ er á í tengslum við lestur.