Tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum
Stefnt er að því að almennt tónlistarnám fari fram í Tónlistarskóla Garðabæjar. Þeir sem óska eftir að leggja stund á sérhæft tónlistarnám sem ekki er í boði í Tónlistarskóla Garðabæjar geta sótt um að Garðabær taki þátt í greiðslu kennslukostnaðar.
Reglur um tónlistarnám utan Garðabæjar voru samþykktar 24. maí 2007.
Umsækjendum er bent á að kynna sér reglurnar vel og útvega viðeigandi fylgigögn áður en umsókninni er skilað á Bæjarskrifstofur Garðabæjar.
Reglur um tónlistarnám utan Garðabæjar
Umsóknareyðublað