Mannauðsstefna Garðabæjar
Mannauðsstefnan var samþykkt á árinu 2008 eftir vinnu við endurskoðun á starfsmannastefnu sem áður var í gildi.
Við gerð mannauðsstefnunnar var þáttum mannauðsstjórnunar gefið meira vægi en i fyrri stefnu. Megin inntakið í mannauðsstjórnun er að litið er á starfsmenn sem auðlind sem skapar virði fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Hópur starfsmanna vann að gerð stefnunnar. Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjónustustjóri Garðabæjar leiddi vinnuna.
Fyrirspurnir og ábendingar varðandi stefnuna er hægt að senda á Vilhjálm í netfangið vilhjalmurha@gardabaer.is.
Mannauðsstefna Garðabæjar (PDF-skjal)