Leit

Leitarvél

Upplýsingar vegna aðstæðna á fjármálamarkaði

Þjónustuver Garðabæjar

Þjónustuver Garðabæjar tekur vel á móti öllum Garðbæingum sem vantar upplýsingar eða ráðgjöf um hvert hægt sé að snúa sér vegna erfiðleika í tengslum við aðstæður á fjármálamarkaði.

Þjónustunet félags- og tryggingamálaráðuneytisins

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði sem felur í sér nýtt vefsvæði, grænt símanúmer, fyrirspurnalínu og netspjall.

Á hinu nýja þjónustuneti er að finna tengingar og helstu upplýsingar um stöðu mála og margvíslega upplýsingaþjónustu og ráðgjöf sem í boði er á vettvangi ráðuneyta og stofnana vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Jafnframt er þar að finna upplýsingar um aðra aðila sem veita margvíslega ráðgjöf og þjónustu sem nýst getur almenningi.

Þjónustunet félags- og tryggingamálaráðuneytisins

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna

Hverfisgata 6, opið kl. 9:00-12:00 og 13:00-15:00. Sími: 551-4485.

www.rad.is

Vinnumálastofnun

Annast alla þjónustu við atvinnuleitendur.

Í því felst:

  • skráning atvinnulausra.
  • upplýsingagjöf um atvinnuleysisbótarétt.
  • ráðgjöf við atvinnuleit.
  • aðstoð við vinnumiðlun.
  • upplýsingar um náms- og starfsúrræði.
  • ráðgjöf til útlendinga um atvinnu, vinnumarkað og búferlaflutninga.

Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar fyrir höfuðborgarsvæðið er að Engjateigi 11, Reykjavík, sími: 515 4850.

www.vinnumalastofnun.is

Upplýsingavefur fyrir umsækjendur atvinnuleysisbóta:

http://www.vinnumalastofnun.is/atvinnuleysistryggingasjodur/upplysingar-um-atvinnuleysistryggingar/

Garðasókn

Bænastarf í Vídalínskirkju

Þriðjudagar: Kyrrðar- og íhugunarstundir  frá kl. 12.00 – 12.30. Safnast saman í kyrrð, sem rofin er af orgelleik kl. 12.10. Ritningarlestur, fyrirbæn, bænastöðvar, sálmur. Góð hvíldarstund í kyrrð kirkjunnar. Vígðir þjónar kirkjunnar annast stundina. Klukkan 12.30 er boðið upp á áframhaldandi samfélag í safnaðarheimilinu. Boðið er uppá súpu og brauð  á vægu verði.
 
Miðvikudagar: Bænahringur kvenna kemur saman í kapellunni kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina. Umsjón hefur sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Hún tekur á móti bænarefnum á netfanginu jonahronn@gardasokn.is
 
Fimmtudagar: Bæna- og kyrrðarstund kl. 22.00 í kapellunni. Umsjón hafa sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún Zoëga djákni. Bæn er lífsleikni, en bænarefnum sem skráð eru í bænabók safnaðarins má koma á netföngin fhjartar@gardasokn.is og ngdjakni@gardasokn.is

Símaviðtalstímar Presta og djákna í Garðasókn.

Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
þriðjudaga til fimmtudaga kl. 11-12
Netfang: jonahronn@gardasokn.is Sími: 5656380 og 8228865

Sr. Friðrik Hjartar
þriðjudaga til fimmtudaga kl. 11-12
Netfang: fhjartar@gardasokn.is. Sími: 5656380 og 8645380

Nanna Guðrún Zoëga djákni
mánudaga og miðvikudaga kl. 10-12
Netfang: ngdjakni@gardasokn.is Sími 5656380 og 8950169

Ármann H.Gunnarsson æskulýðsdjákni
Netfang: armann@gardasokni.is Sími 5656380 og 6929343

www.gardasokn.is

Heilsugæslan í Garðabæ

Úrræði  Heilsugæslunnar í Garðabæ vegna efnahagskreppunnar:

  1. Heilsugæslan í Garðabæ er opin virka daga kl. 8 - 1 7, sími 520 1800
  2. Viðtalstímar lækna.
    a)  Hefðbundnir viðtalstímar. Stundum er nokkurra daga bið eftir slíkum.
    b)  Tímar sem eingöngu er bókað í samdægurs, ætlaðir fyrir tilvik sem þola illa bið. Slíkir tímar eru ávallt lausir í byrjun dags. Fyrstir-koma fyrstir-fá.
    c) Síðdegismóttaka alla virka daga kl. 16 – 16:50, stutt erindi, þörf á að bóka viðtalstíma.
  3. Símatímar lækna, upplýsingar í móttöku Heilsugæslunnar, s. 520 1800.
  4. Símaþjónusta  hjúkrunarfræðinga kl. 8 -  15
  5. Fólk í vanda sem þolir ekki neina bið  getur  komið til hjúkrunarfræðings á skiptistofu kl. 8:10 – 15. Læknir á dagvakt tiltækur.
  6. Símaþjónusta og viðtalstímar fjölskylduráðgjafa.
  7. Símaþjónusta og ráðgjöf sálfræðings.
  8. Utan dagvinnutíma (þ.e. kvöld og helgar) er bent á Læknavaktina, Smáratorgi í Kópavogi, s. 1770.
Aðrir gagnlegir tenglar:

Rauði krossinn - hjálparsími 1717

Spurt og svarað á vef Íbúðalánasjóðs

Spurt og svarað á vef Tryggingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi