Félagsleg heimaþjónusta
Kost á félagslegri heimaþjónustu eiga þeir sem ekki geta hjálparlaust séð um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, barnsburðar eða fötlunar, sbr. lög um félagsþjónustu.
Umsókn um félagslega heimaþjónustu
Gjaldskrá heimaþjónustu
Reglur um heimaþjónustu.
Umsókn um félagslega heimaþjónustu skal vera skrifleg og þurfa umsækjendur að skila viðeigandi upplýsingum með umsókn sinni ásamt læknisvottorði ef við á.
Upplýsingar veitir:
Hjördís Agnarsdóttir, verkstjóri heimaþjónustu,Jónshúsi
Strikinu 6
sími: 512-1552
netfang; hjordisag@gardabaer.is
Matarþjónusta
Hægt er að fá mat í hádeginu virka daga í Jónshúsi. Matinn þarf að panta fyrirfram. Upplýsingar hjá Jónínu í síma 512-1502
Eldri borgarar eiga einnig kost á að fá heimsendan mat frá Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð og er maturinn keyrður út í matarbökkum.
Þeir sem vilja nota sér þjónustuna er bent á að hafa samband við eldhús Holtsbúðar (Einar).
Eldri bæjarbúar sem búa á eigin vegum eiga einnig kost á að koma í hjúkrunarheimilið og fá þar keyptan mat daglega.
Gjald fyrir hverja máltíð er 600 krónur en heimsendingarkostnaður er 150 krónur.