Íbúðir fyrir aldraða
Að Kirkjulundi 6 og 8 eru fjórar leiguíbúðir fyrir aldraða í eigu Garðabæjar sem leigðar eru eldri bæjarbúum.
Upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofum í síma 525 8500.
Á Hleinum í nágrenni við Hrafnistu í Hafnarfirði hefur stjórn Sjómannadagsráðs haft forgöngu um uppbyggingu lítilla raðhúsa. Reistar hafa verið 54 íbúðir, ýmist í eigu félagasamtaka eða einstaklinga. Skilyrði fyrir búsetu eru þau að íbúar séu 60 ára eða eldri og eiga þeir kost á ýmis konar þjónustu sem veitt er á Hrafnistu.
Upplýsingar eru veittar:
á skrifstofu Hrafnistu í Hafnarfirði
mánudaga til föstudaga kl.9-16
sími 565 3000.
Byggingarfélag eldri borgara hefur séð um framkvæmdir við fjölbýlishús sem hafa verið reist við Kirkjulund og Garðatorg. Þar eru samtals 43 íbúðir. Reiknað er með áframhaldandi uppbyggingu slíkra íbúða í bænum eftir því sem eftirspurn segir til um.