Leit

Leitarvél

Hvatapeningar fyrir börn og unglinga í Garðabæ

Hvatapeningar ársins 2012 eru 25.000 krónur á barn. Öll börn á aldrinum 5-18 ára fá nú hvatapening, þ.e. börn fædd á árunum 1994-2007.

Hvatapeningana er hægt að nýta til að lækka kostnað við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem nær yfir 10 vikur að lágmarki.

Ungmenni í tveimur elstu árgöngunum, þ.e. þau sem eru fædd 1994 og 1995 geta fengið hvatapeninga greidda vegna kaupa á korti í líkamsræktarstöð.

Úthlutun peninganna fer fram á íbúavef Garðabæjar, Mínum Garðabæ

Leiðbeiningar um notkun hvatapeninga.

Á íbúavefnum Mínum Garðabæ er hægt að ráðstafa hvatapeningum beint inn á greiðsluseðla frá félögum í Garðabæ.  Þeir sem stunda íþróttir eða tómstundir hjá öðrum félögum eða hafa þegar greitt æfingagjöld hjá félögum í Garðabæ þurfa að koma með kvittun í þjónustuver Garðabæjar ásamt því að sækja um hvatapeninginn inni á íbúavefnum Mínum Garðabæ. Á kvittuninni þarf að koma fram nafn og kennitala barns, æfingatímabil og hvaða íþrótt/tómstundir viðkomandi er að æfa.

Reglur um hvatapeninga 2012

Athugið að hvatapeningar fyrnast alltaf um áramót.  Hvatapeninga ársins 2012 er hægt að nýta vegna reikninga sem eru gefnir út á árinu 2011 og 2012.

 

Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða í netfangi gardabaer@gardabaer.is

Hvatapeningar

 

Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi