Leit

Leitarvél


Félög og samtök í Garðabæ


Tenglar fara beint inn á vefsíður þeirra félaga sem hafa vefsíður.

Forsvarsmenn félaga og samtaka í Garðabæ eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna um breytingar á starfsemi og vefföngum félaga í netfangið gardabaer@gardabaer.is.

AA-samtökin

Byggingarfélag eldri íbúa í Garðabæ

Félag eldri borgara í Garðabæ

Gideonfélagið á Íslandi
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
Golfklúbbur Oddfellowa og Golfklúbburinn Oddur
Golfklúbburinn Setberg
Gróska - samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi

Hestamannafélagið Andvari
Hjálparsveit skáta í Garðabæ

Inner Wheel klúbburinn Görðum

JC Garðabær og Kópavogur

KFUM & K
Kiwanisklúbburinn Setberg    
Kór eldri borgara í Garðabæ
Kór Vídalínskirkju
Kvennakór Garðabæjar
Kvenfélag Garðabæjar

Lionsklúbburinn Eik
Lionsklúbbur Garðabæjar

Norræna félagið í Garðabæ

Rauðakrossdeild Garðabæjar
Rótaryklúbburinn Görðum

Sinawikklúbbur Garðabæjar
Skátafélagið Vífill
Skógræktarfélag Garðabæjar
Soromptimistaklúbbur Hafnarfjarðar og Garðabæjar

Taflfélag Garðabæjar

Ungmennafélagið Stjarnan

Æskulýðsfélag Garðakirkju


AA-samtökin
Alþjóðlegur félagsskapur karla og kvenna, sem veita gagnkvæma hjálp til að lifa lífinu án áfengis og miðla öðrum, sem eiga við drykkjuvandamál að stríða, fúslega af reynslu sinni.

Fundir eru allt árið í Kirkjuhvoli
fimmtudaga kl. 20:00 og fimmtudaga kl. 21:00.
Opnir fjölskyldufundir eru  föstudaga kl. 21:00.

Skrifstofa samtakanna,
Tjarnargötu 20 í Reykjavík,
opin:mánudaga - föstudaga kl. 13:00 - 17:00,
sími 551 2010.
Símavakt er mánudaga - föstudaga kl. 13:00 - 20:00 og um helgar kl. 17:00 - 20:00
sími 551 6373.
www.aa.is

Byggingarfélag eldri íbúa í Garðabæ 
Hefur staðið fyrir framkvæmdum við 43 íbúðir í fjölbýlishúsum við Kirkjulund og Garðatorg.

Félag eldri borgara í Garðabæ

Hlutverk þess að vinna að hagsmunamálum eldra fólks á sem víðtækustu sviðum. Á meðal þeirra eru húsnæðismál, tómstundastörf, íþróttir og útivist og lög og reglugerðir er varða málefni aldraðra.

Rétt til aðildar að félaginu eiga þeir sem náð hafa 60 ára aldri, eða eftirlaunaaldri sé hann fyrr, og einnig makar félagsmanna þó yngri séu.

Félag eldri borgara er með aðstöðu í Jónshúsi, Strikinu 6.

Skrifstofa félagsins er opin á þriðjudögum kl. 10.30 - 11.30.
Síminn hjá félaginu er 565 6627.
Formaður er Helgi Hjálmsson.

Gideonfélagið á Íslandi
Félag kristinna verslunar- og sérmenntaðra manna og vinnur að markmiðum sínum með dreifingu á Biblíunni og einstökum ritum hennar. Á vegum félagsins fá tíu ára skólabörn og fólk í hjúkrunarstétt afhent Nýja testamentið og Davíðssálma. Félagið hefur starfað frá árinu 1945.

Félagsfundir eru á sunnudögum einu sinni í mánuði, kl. 09:00 á heimilum félagsmanna.

Talsmaður Garðbæinga er Kári Geirlaugsson
Sími 565 8035

www.gideon.is

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

www.gkg.is

Golfklúbbur Oddfellowa og Golfklúbburinn Oddur

www.oddur.is

Golfklúbburinn Setberg 

Klúbburinn er öllum opinn og á hann aðild að Golfsambandi Íslands. Golfvöllur klúbbsins, norðvestan við Urriðavatn var vígður þann 23. júní 1995 og var þá golfskáli tekinn í notkun.

Upplýsingar eru veittar í golfskálanum, sími 565 5690.

Formaður er Högni Friðþjófsson, sími 555 3552.


Gróska

Gróska er heitið á samtökum myndlistarmanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ og Álftanesi.  Gróska er með félagsaðstöðu að Garðatorgi 1, þar sem jafnframt er sýningarsalur á þeirra vegum.  Félagar í Grósku eru yfir 80 talsins. Aðalmarkmið samtakanna er að efla veg myndlistar í Garðabæ og á Álftanesi.

Gróska hefur undanfarin ár haldið vorsýningu á Garðatorgi, staðið fyrir Jónsmessugleði í júní auk fjölmargra annarra viðburða.

Gróska er með upplýsingasíðu á facebook.

Hestamannafélagið Andvari

www.andvari.is

Hjálparsveit skáta, Garðabæ 

www.hjalparsveit.is

Inner Wheel klúbburinn Görðum
Starfar í Garðabæ og Bessastaðahreppi. Markmið klúbbsins eru að auka sanna vináttu, efla mannleg samskipti og auka alþjóðlegan skilning. Klúbburinn er aðili að alþjóðahreyfingu Inner Wheel.

Fundir eru í september - apríl (þó ekki í desember), á Hótel Loftleiðum síðasta miðvikudag í mánuði.

JCI Garðabær Kópavogur

http://www.123.is/jcigk/

KFUM & K
Eru æskulýðsfélög og eru markmið þeirra að boða kristna trú og standa vörð um kristin lífsviðhorf auk hollrar tómstundaiðju.
Félögin vilja aðstoða foreldra og aðra uppalendur við hið kristna uppeldi barnanna og eru þau þannig liður í skírnarfræðslu þjóðkirkjunnar. Starf félaganna fer meðal annars fram á fundum, þar sem auk hinnar kristnu boðunar eru leikir, söngur, myndasýningar, ýmsir fræðsluþættir og margt fleira.

Fundir eru í Kirkjuhvoli mánudaga kl. 17:30 fyrir drengi 9 - 12 ára og þriðjudaga kl. 17:30 fyrir stúlkur 9 - 12 ára.

Talsmenn félaganna eru Anna Hugadóttir sími 565 6117 og Kári Geirlaugsson, sími 565 8035

veffang www.kfum.is/

Kiwanisklúbburinn Setberg
Starfar undir kjörorðinu "Við byggjum betra líf", og vinnur að því markmiði meðal annars með félagsstarfi í þágu aldraðra, ýmsum styrk- og verðlaunaveitingum, gróðursetningarstarfi og þátttöku í átaki Kiwanishreyfingarinnar við uppbyggingu endurhæfingarheimilis fyrir geðsjúka.

Fundir eru í Kiwanishúsinu
að jafnaði annan hvern fimmtudag kl. 20:00.

Kiwanishúsið er við Faxatún
sími 565 8383.

www.kiwanis.is/setberg

Kór eldri borgara í Garðabæ

Æfingar eru:
Á þriðjudögum kl. 16.30 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli.

Kór Vídalínskirkju

Kórinn syngur við kirkjulegar athafnir í Vídalíns- og Garðakirkju og hefur komið fram á aðventukvöldi, á tónleikum heima og erlendis og við ýmis önnur tækifæri. Í kórnum hafa verið um 20 félagar en gert er ráð fyrir að fjölga þeim.

Æfingar eru í Safnaðarheimili Vídalínskirkju
Kirkjuhvoli
miðvikudaga kl. 20:00.

Formaður er  Gísli B. Ívarsson. Símar 554 7055 og 8996075
Kórstjóri er Jóhann Baldvinsson

Kvennakór Garðabæjar

www.kvennakor.is


Kvenfélag Garðabæjar

www.kvengb.is

Lionsklúbburinn Eik
Starfar að líknar- og menningarmálum og felst þróttmikið félagsstarf meðal annars í fundum, skemmtikvöldum, útivistarferðum og ýmsum störfum í fjáröflunarskyni. Á meðal verkefna má nefna ýmis tæki og búnað sem gefin hafa verið til Heilsugæslunnar, skólanna og íþróttamiðstöðvarinnar Ásgarðs, stuðningur við unglingastarf og störf við félagsstarf aldraðra í bænum.

Fundir eru í september - maí
í Garðabergi
þriðja þriðjudag í mánuði, kl. 19:00.

Póstfang Lionsklúbburinn Eik, Póshólf 266, 212 Garðabæ.

www.lions.is

Lionsklúbbur Garðabæjar
Starfar að líknarmálum og öðrum velferðarmálum, og er styrktarfjár meðal annars aflað með sölu á perum, sælgæti, húsdýraáburði og fleiru. Klúbburinn hefur meðal annars gefið lækningatæki til Heilsugæslunnar, styrkt Hjálparsveit skáta til tækjakaupa, lagt til heita potta við sundlaug bæjarins og lagt fé til vistrýmis að Hrafnistu í Hafnarfirði. 

Fundir eru í september - maí
í Garðaholti
annan og fjórða þriðjudag í mánuði, kl. 19:30.

www.lions.is

Norræna félagið í Garðabæ
Vinnur að samstarfi norrænna og norðlægra þjóða, einkum á sviði félags- og menningarmála. Aðilar að félaginu geta orðið jafnt einstaklingar, skólar, félög sem fyrirtæki. Félagið aðstoðar og veitir upplýsingar um hvaðeina, sem varðar norrænt samstarf.

Norræna félagið tekur þátt í vinabæjamótum sem eru haldin annað hvert ár. Sjá nánar um vinabæjasamstarf í Garðabæ.

www.nordengb.is

Rauðakrossdeild Garðabæjar
Vinnur að ýmsum mannúðar- og jafnréttismálum. Deildin á og rekur sjúkrabíla í samvinnu við deildirnar í Bessastaðahreppi og Hafnarfirði. Hún hefur fært gjafir til félagsstarfs aldraðra í Garðabæ og Heilsugæslunnar og fært sjúklingum á Vífilsstöðum gjafir á jólum. Einnig hafa börn í yngstu deildum grunnskólanna í bænum fengið hjólreiðahjálma að gjöf frá deildinni. Haldin hafa verið margvísleg námskeið ætluð almenningi, svo sem barnfóstrunámskeið, námskeið varðandi slys á börnum, starfslokanámskeið og ný námskeið hafa verið fyrir íþróttakennara og íþróttaþjálfara um íþróttaslys. Rauðakrossdeildin er með fatasöfnun í samvinnu við deildina í Hafnarfirði. Tekna hefur verið aflað með rekstri spilakassa, merkjasölu á öskudag og söfnunum.

Húsnæði deildarinnar, Hrísmóum 4
sími og fax 565 9494,

Fundir eru að jafnaði einu sinni í mánuði á vetrum.

www.redcross.is

Rótarýklúbburinn Görðum 

http://www.gordum.vefurinn.is


Sinawikklúbbur Garðabæjar
Klúbbur eiginkvenna Kiwanismanna í Garðabæ. Klúbburinn hefur tekið virkan þátt í verkefnum þeirra á sviði líknarmála og einnig veitt nokkra styrki til þeirra sem minna mega sín í bæjarfélaginu. Fyrir jól hafa konurnar einnig heimsótt fjölfötluð börn í bænum.

Fundir eru í Kiwanishúsinu
fyrsta mánudag í mánuði, kl. 20:00.

Kiwanishúsið er við Faxatún, sími 565 8383.


Skátafélagið Vífill

www.vifill.is

Skógræktarfélag Garðabæjar
Vinnur að skógrækt og trjárækt ofan byggðar og stuðlar að góðri umgengni á útivistarsvæðum.

www.skoggb.is


Soroptimistaklúbbur Hafnarfjarðar og Garðabæjar
Klúbburinn tilheyrir Alþjóðasambandi soroptimista, en það eru samtök starfsgreindra þjónustuklúbba sem ná yfir alla heimsbyggðina. Höfuðmarkmið soroptimista er að vinna að betra mannlífi í hverfulum heimi. Hér á landi hafa samtökin starfað frá árinu 1959 og eru klúbbarnir sextán talsins og dreifast víðs vegar um landið.

Fundir eru fyrsta mánudag í mánuði.

www.soroptimist.is

Taflfélag Garðabæjar

www.tgchessclub.com

Ungmennafélagið Stjarnan

www.stjarnan.is

Æskulýðsfélag Garðakirkju
Félag fyrir ungmenni á aldrinum 13 - 16 ára. Félagið var stofnað 12. janúar 1967 og eru markmið þess að virkja ungt fólk til þátttöku í safnaðarstarfi, bjóða upp á skemmtiefni og boða kristna trú. Félagið tekur þátt í æskulýðsmótum og farið er í ferðalög.

Fundir eru í Kirkjuhvoli á vetrum,
þriðjudaga kl. 19:30 fyrir yngri deild og sunnudaga kl. 20:00 fyrir eldri deild.

Upplýsingar um félagið eru veittar á
skrifstofu Garðasóknar í Kirkjuhvoli,
mánudaga - fimmtudaga, kl. 13:00 - 17:00,
sími 565 6380.

 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi