19. júní sjóður um kvennahlaup í Garðabæ
Leiðbeiningar með umsóknareyðublaði um styrk úr 19. júní sjóði um kvennahlaup í Garðabæ
1. Umsækjendur.
Nöfn allra umsækjenda þurfa að koma fram á umsóknareyðublaði.
2. Ábyrgðaraðili.
Ábyrgðaraðili með verkefninu skal valinn úr hópi umsækjenda. Hann sér um tengsl við starfsmann stjórnar 19. júní sjóðs og ber ábyrgð á að skýrslum verði skilað.
3. Lýsing á verkefninu
Lýsing á verkefni skal skráð á sérstakt blað sem fylgja skal umsókninni.
Í lýsingunni eiga að koma fram eftirfarandi atriði :
- Vel skilgreind markmið.
- Greinargóð lýsing á áætlaðri framkvæmd þar sem fram koma þær leiðir sem farnar verða eða þær aðferðir (skilgreining árangursmælikvarða) sem beitt verður til að ná settum markmiðum. Einnig þarf að setja viðmið um árangur verkefnisins.
- Verkaskipting þátttakenda.
- Áætlun um upphaf og lok verkefnis og / eða áfanga.
- Sundurliðuð kostnaðaráætlun.
- Aðrar upplýsingar svo sem.
4. Utanaðkomandi ráðgjöf
Æskilegt er að umsækjendur leiti ráðgjafar hjá sérfræðingum eða stofnunum við skipulag verkefnis og mat. Gera þarf ráð fyrir kostnaði vegna þessa í kostnaðaráætlun.
5. Framkvæmda- og kostnaðaráætlun.
Í framkvæmdaáætlun komi fram tímalengd verkefnis, helstu verkþættir og verkaskipting þátttakenda.
Í kostnaðaráætlun komi fram fjöldi vinnustunda og skipting á þátttakendur og tímabil. Ennfremur skili umsækjendur sundurliðaðri áætlun um annan kostnað þar sem við á svo sem aðkeypta þjónustu, ferðakostnað og efniskaup.
6. Mat á umsóknum.
Stjórn 19. júní sjóðs getur leitað umsagna og álits utanaðkomandi aðila við mat á umsóknum
Við mat á umsóknum hefur stjórn 19. júní sjóðs eftirtalin atriði til hliðsjónar:
- Gildi verkefnis fyrir umsækjendur og áhrif þess á og fyrir íþróttaiðkun kvenna .
- Rökstudda skipulagningu á framkvæmd verkefnis.
- Faglega umsjón og / eða utanaðkomandi ráðgjöf.
- Framlag verkefnis varðandi þróun á þátttöku kvenna í íþróttum.
7. Skýrslur.
- Styrkþegum ber að skila áfangaskýrslu til stjórnar 19. júní sjóðs. Í henni er gerð grein fyrir hvað unnið hefur verið, hvernig og hvað sé framundan.
- Allir umsækjendur þurfa að skila lokaskýrslu.
Í lokaskýrslunni þarf m.a. að koma fram.
- Aðdragandi og undirbúningsvinna.
- Lýsing á markmiðum.
- Verklýsing þar sem fram kemur skipulag, umfang og framkvæmd vinnunnar.
- Niðurstöður og mat. Nauðsynlegt er að umsækjendur leggi mat á hvernig til hefur tekist með verkið að því loknu og hvort upphaflegum markmiðum hafi verið náð.
Mikilvægt er að allar upplýsingar séu eins ítarlegar og framast er kostur.