Íþrótta- og tómstundaráð
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar (ÍTG) vinnur að stuðningi við hverskonar félagsstarf á sviði íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamála í bænum og er bæjarstjórn til ráðuneytis um framkvæmdir í þeim tilgangi. Ráðið hefur umsjón með rekstri íþróttamannvirkja í bænum, svo og félagsmiðstöðvar og sér um kjör á íþróttamanni Garðabæjar.
Í samræmi við afreksstefnuna geta íþróttamenn í fremstu röð sótt um styrki úr afrekssjóði fyrir 1. febrúar ár hvert.
Upplýsingar veitir:
Kári Jónsson, íþróttafulltrúi
sími 565 8044
netfang: karijo@gardabaer.is
Íþróttamaður ársins
Íþrótta- og tómstundaráð hefur umsjón með vali á íþróttamönnum ársins í Garðabæ.
Auglýsing um val á íþróttamönnum ársins 2011 - tilnefningar þurfa að berast fyrir 11. desember 2011.
Listi yfir íþróttamenn ársins fyrri ára.
Reglugerð ÍTG um val á íþróttamanni ársins (birtist undir fræðslu- og menningarmálum)