Íþróttamaður Garðabæjar 2011
Smelltu á hnappinn til að taka þátt í valinu:
Þrettán íþróttamenn eru tilnefndir til íþróttamanns Garðabæjar 2011. Um er að ræða 7 karla og 6 konur.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar mun, eins og á síðasta ári, velja einn karl og eina konu sem hljóta sæmdarheitin íþróttakarl og íþróttakona Garðabæjar 2011.
Íbúar Garðabæjar hafa aðgang að kjörinu með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan og fylla út "kjörseðil".
Kosningin stendur frá fimmtudeginum 22. desember til föstudagsins 30. desember.
ÍTG mun síðan styðjast við álit bæjarbúa við kjörið en því verður lýst við hátíðlega athöfn í sal FG þann 8. janúar.
Þeir sem eru tilnefndir eru taldir upp hér fyrir neðan. Hægt er að smella á nöfn íþróttamannanna til að fá upplýsingar um afrek þeirra.
Íþróttakarl Garðabæjar 2011
Emil Gunnarsson - blak
Garðar Jóhannsson - knattspyrna
Guðjón Henning Hilmarsson - golf
Gunnar Kolbeinn Kristinsson - hnefaleikar
Marvin Valdimarsson - körfuknattleikur
Svavar Már Ólafsson - handknattleikur
Örn Valdimarsson - skotfimi
Íþróttakona Garðabæjar 2011
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - knattspyrna
Hanna Guðrún Stefánsdóttir - handknattleikur
Hanna Rún Óladóttir - dans
Hjördís Eiríksdóttir - blak
Hulda Magnúsdóttir - fimleikar
Ingunn Gunnarsdóttir - golf