Kirkjustarf í Garðabæ
Upplýsingar um kirkjustarf og starfsfólk Garðasóknar eru á slóðinni:
Vídalínskirkja var vígð 30. apríl 1995. Salur kirkjunnar rúmar um 280 gesti í sæti en opna má úr kirkjusalnum um gang yfir í sal safnaðarheimilisins og fæst þá rými fyrir 600 - 700 sæti.
Vídalínskirkja er við Kirkjulund, sími 565 6380.
Garðakirkja hefur verið sóknarkirkja Garðasóknar frá 1966. Kirkjan er byggð úr rústum kirkju sem var reist í Görðum árið 1880 en var lögð niður sem sóknarkirkja árið 1914 og síðan rifin að mestu. Að frumkvæði kvenna í Kvenfélagi Garðahrepps hófst endurbygging kirkjunnar árið 1953 og var hún vígð 20. mars 1966. Í kirkjunni eru sæti fyrir um 200 gesti.
Garðakirkja er í Görðum á Álftanesi, sími 555 2288.