Leit

Leitarvél

Reglur um úthlutun vinnuaðstöðu fyrir listamenn í Króki á Garðaholti

  1. Bærinn Krókur er bárujárnsklæddur burstabær á Garðaholti í eigu Garðabæjar. Í Króki er eitt herbergi sérstaklega ætlað sem vinnuaðstaða fyrir listamann. Í öðrum herbergjum hússins eru varðveitt gömul húsgögn og aðrir munir.
  2. Listamaðurinn hefur afnot af skrifstofuhúsgögnum, net-tengingu og búnaði til heimilishalds (borðbúnaði). Gera skal samning um afnot af Króki á milli hvers listamanns/gests og Garðabæjar, þar sem nánar er kveðið á um umgengni, tryggingar o.fl.
  3. Afnot listamanns af húnæðinu skal vera án endurgjalds að öðru leyti en því að greiða þarf fyrir tölvunotkun og síma.
  4. Að öllu jöfnu skal viðkomandi listamaður, meðan á dvöl í Króki stendur, kynna með einhverjum hætti störf sín.
  5. Vinnuaðstöðunni skal úthlutað 1-3 mánuði í senn. Heimilt er við sérstakar aðstæður að úthluta aðstöðunni til lengri tíma.
  6. Fræðslu- og menningarsvið skal árlega auglýsa eftir umsóknum listamanna um tímabundna vinnuaðstöðu í Króki. Umsóknir skulu lagðar fyrir menningar- og safnanefnd er gerir tillögur til bæjarstjórnar um ráðstöfun vinnuaðstöðunnar hverju sinni.
  7. Upplýsingafulltrúi skal annast samninga um afnot húsnæðisins og vera tengiliður Garðabæjar við viðkomandi listamann á dvalartíma.

 
Samþykkt í bæjarráði Garðabæjar
19. ágúst 2003

Bæjarritari

 

 

Menning


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi