Byggingarnefnd og byggingarfulltrúi
Byggingarnefnd fjallar um byggingarleyfisumsóknir sem berast og ályktar um úrlausn þeirra til bæjarstjórnar.
Byggingarnefnd ber að hafa eftirlit með því að byggt sé í samræmi við gildandi skipulag, lagaákvæði og reglugerðir um skipulags- og byggingarmál.
Samkvæmt sérstakri samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar hefur byggingarfulltrúi heimild til að afgreiða sjálfur, án samþykktar byggingarnefndar, umsóknir sem varða m.a. einbýlis-, par- eða raðhús, viðbyggingar, minni mannvirki og breytingar á innra skipulagi mannvirkja.
Upplýsingar um samskipti lóðarhafa, hönnuða og byggingarstjóra við byggingarfulltrúa
Upplýsingar veitir:
Agnar Ástráðsson, byggingarfulltrúi,
sími 525 8500,
netfang: agnar@gardabaer.is
Byggingarnefnd er kjörin af sveitarstjórn skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og síðari breytingum.
Byggingarnefnd skipa:
Jón Benediktsson formaður
Gunnar Pálmason
Halldór Halldórsson
Áslaug Hulda Jónsdóttir
Arnar Óskarsson
Umhverfisráðherra setur, í samráði við Skipulagsstofnun, byggingarreglugerð sem nær til landsins alls þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd mannvirkjakafla skipulags- og byggingarlaga. Gildandi byggingarreglugerð er nr. 441/1998 ásamt síðari breytingum.
Lög og reglugerðir um byggingarlög (fer inn á vef Skipulagsstofnunar, veljið byggingarmál til vinstri á síðunni sem kemur upp).