Fráveita
Fráveita bæjarins er í umsjá þjónustumiðstöðvar Garðabæjar.
Stofnlagnir skolps liggja átt til sjávar í Arnarnesvogi og vestast á Arnarnesi. Skolpinu er dælt frá dælustöð við Arnarneslæk og dælubrunni á Arnarnesi til Kópavogs og síðan til Reykjavíkur. Þar er skolpinu dælt frá Mýrargötu út fyrir Akurey í sameiginlegri lögn Reykjavíkur, Seltjarnarness, Kópavogs og Garðabæjar. Stofnlagnir regnvatns eru leiddar í Arnarneslæk, Hraunsholtslæk og til sjávar.
Tvöfalt fráveitukerfi er í öllum nýjum hverfum bæjarins, en einfalt kerfi er í Silfurtúni, sunnanverðu Arnarnesi, Ásum, hluta af Grundum og á Fitjum. Rotþrær eru við Hraunhóla, í suðurhluta Löngufitjar, í hverfi meðfram Álftanesvegi, Molduhrauni og að mestu í Garðahverfi, en eftir föngum verður stefnt að tengingu þessara bæjarhluta við stofnlagnir fráveitunnar.
Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes og Reykjavík sameinuðust um þá lausn að leiða allt skolp frá þremur fyrstnefndu sveitarfélögunum og verulegan hluta skolps frá Reykjavík í Skerjafjarðarveitu sem sameinast í einni útrás frá Ánanaustum í Reykjavík og nær út fyrir Akurey. Kársnesveita í Kópavogi kemur í framhaldi af Skerjafjarðarveitu til suðurs og Garðabæjarfráveita í framhaldi af henni.
Sú lausn sem sveitarfélögin féllust á gefur bestu mögulegu hreinsun á skolpinu. Í sjónum brotna lífræn efni í skolpinu niður í eðlilegri hringrás náttúrunnar. Önnur efni svo sem þungmálmar eru í miklu minni styrkleika í skolpinu en í sjónum og gera því engan skaða, þar sem viðtökusvæðið er nægilega stórt og sterkir straumar fyrir hendi.
Frekari upplýsingar veitir:
Þjónustumiðstöð Garðabæjar (áhaldahús)
Lyngási 18
virka daga kl. 7:30 - 17:00,
símar 565 8532 og 565 8611,
fax 565 0230.
Eftir lokun veitir símsvari upplýsingar í síma 565 8532.