Ferðaþjónusta fatlaðra
Markmið ferðaþjónustu fatlaðra er að gera þeim sem ekki geta nýtt sér almenningsvagna kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.
Umsóknir skulu berast bæjarskrifstofu og skal fylgja þeim læknisvottorð, þar sem það á við.
Hér á heimasíðunni er hægt að nálgast umsókn til útprentunar (undir þjónusta Garðabæjar).
Einnig er hægt að senda inn rafræna umsókn í gegnum íbúavefinn Minn Garðabæ.
Upplýsingar veitir Edda Tryggvadóttir á bæjarskrifstofum Garðabæjar, sími 525 8564, netfang edda@gardabaer.is.
Reglur um ferðaþjónustu fyrir fatlaða í Garðabæ (undir félagsþjónusta)
Lög um málefni fatlaðra.
Reglur ferðaþjónustu fatlaðra:
- Ekið er alla daga kl. 7:00 - 24:00 nema á stórhátíðum en þá er ekið á sama tíma og Strætó bs.
- Þeir sem njóta þjónustunnar skulu hafa tiltekin ferðaleyfi sem gefin eru út af fjölskyldu- og heilbrigðissviði.
- Þjónustusvæðið er: Hafnarfjörður, Garðabær,Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes, Bessastaðahreppur og Mosfellsbær.
- Pöntunarsími er 550-4700 og faxnúmer 550-4705. Vaktsími eftir lokun 860-0741.
- Símaþjónustan er opin alla virka daga frá kl. 8.00 til 16.00.
- Panta þarf með sólarhrings fyrirvara - nema fyrir mánudaga. Pantanir um akstur á mánudegi þurfa að berast á föstudegi. Kvöldferðir er hægt að panta samdægurs til klukkan 16 á virkum dögum. Sama regla gildir um afpöntun ferða að öðrum kosti teljast þær með í uppgjöri.
- Ekki er tekið á móti pöntunum ferða utan afgreiðslutíma nema í undantekningartilfellum.
- Akstur miðast við að og frá anddyri. Bílstjórar aðstoða ekki þar sem snjór, hálka eða aðrar hindranir eru í veginum. Aðstoð skal vera fyrir hendi við allar útitröppur sem liggja að anddyri.
- Farþegar skulu vera tilbúnir til brottfarar í anddyri á umsömdum tíma. Bílstjórar fara ekki í sendiferðir fyrir farþega.
- Ekki er beðið eftir farþega á meðan hann sinnir erindi sínu, sama hvers eðlis það er.
- Ein ferð telst frá A til B. Farþegar mega taka með sér aðstoðarmann en hann greiðir sama gjald og gildir í almenningsvögnum.
- Ferðir geta tafist eða fallið niður vegna veðurs, bilana eða annarra ófyrirséðra orsaka.
- Ferðir geta hafist allt að 45 mínútum fyrir viðveru og 30 mínútum eftir viðveru.
- Geti farþegar ekki ferðast einsamall án þess að valda öðrum óþægindum getur Ferðaþjónustan krafist fylgdarmanns með honum.
- Fargjald er það sama og almennt gjald Strætó bs.