Leit

Leitarvél
20.02.2012

Gleði á þorrablóti í Hofsstaðaskóla

Árlegt þorrablót 6. bekkinga var haldið í Hofsstaðaskóla miðvikudaginn 8. febrúar. Nemendur buðu foreldrum sínum til frábærrar veislu þar sem gleði og ánægja skein úr hverju andliti.

Mikill vinna er lögð í undirbúning fyrir þorrablót þar sem allir eru virkjaðir og hafa hlutverk. Salurinn var glæsilega skreyttur af nemendum með skrauti sem þeir útbjuggu undir stjórn list- og verkgreinakennara. Nemendur buðu gestum sínum upp á fjölbreytt skemmtiatriði sem m.a. samanstóðu af leikriti, hljóðfæraleik, söng, dansi og leiknum bröndurum. Dagskráin var kynnt af myndarskap og sáu nemendur um að stýra tæknimálum meðan á sýningunni stóð. Síðast en ekki síst má minnast á flutning á minni karla og kvenna sem er fastur liður á þorrablóti sem vekur alltaf mikla lukku.

Að skemmtiatriðum loknum var boðið upp á þorramat sem heimilisfræðikennarinn og nemendur höfðu undirbúið. Í lokinn dönsuðu foreldrar og nemendur af mikilli gleði undir stjórn íþróttakennara, en nemendur hafa fengið kennslu í dansi í íþróttatímum.

Á vef Hofsstaðaskóla er fjöldi mynda frá blótinu.


Þorrablót 6. bekkjar í Hofsstaðaskóla í feb. 2012

Þorrablót 6. bekkjar í Hofsstaðaskóla í feb. 2012

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi