Leit

Leitarvél

Rammaskipulag Hnoðraholts

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 15. nóvember 2007 að velja tillögu Arkþings, Arkitema og VSÓ ráðgjafar að rammaskipulagi íbúðabyggðar í Hnoðraholti til útfærslu rammaskipulags á svæðinu. Tillagan gerir ráð fyrir 682 nýjum íbúðum í holtinu og útivistarsvæði á háholtinu með tengingum í aðliggjandi opin svæði.

Hnoðraholt er staðsett austan Reykjanesbrautar í Garðabæ. Í vesturhluta holtsins er nú þegar íbúðahverfi með 44 einbýlishúsum. Sunnan við holtið er Vetrarmýri en í stærstum hluta hennar er golfvöllur GKG.

Tillaga Arkþings, Arkitema og VSÓ ráðgjafar

Tillagan gerir ráð fyrir færslu Hnoðraholtsbrautar frá núverandi byggð um 10-50 metra og er þannig tekið tillit til núverandi byggðar. Áhersla er lögð á að byggð verði smágerð og lágreist og falli vel að landi. Þannig fellur byggð að núverandi byggð í holtinu og ásýnd hverfisins verður í anda byggðar í Garðabæ.

Tillagan gerir ráð fyrir 682 nýjum íbúðum í einbýlishúsum, rað- og parhúsum og fjölbýli. Magn atvinnuhúsnæðis er 8.500 m2.

Tillaga Arkþings, Arkitema og VSÓ ráðgjafar (PDF-skjal)

Myndband sem sýnir líkan að tillögunni

Greinargerð rýnihóps (PDF-skjal)


 

 

Skipulags- og byggingarmál


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi