Leit

Leitarvél

Samkynhneigð

 

Samtökin 78 - skoða eru hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenders fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transgender fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi. Félagið vinnur að þessum markmiðum eftir þeim leiðum sem árangursríkastar þykja hverju sinni, svo sem með fræðslustarfi í atvinnulífi, skólakerfi; á vettvangi löggjafarvalds og í fjölmiðlum.

Til að taka fyrsta skrefið og nálgast sína líka finnst mörgum mikilvægt að geta rætt um líðan sína og tilfinningar í síma. Símtal til Samtakanna ´78 er oft fyrsta tækifærið til að ræða tilfinningamálin án þess að þurfa að koma fram og segja hver maður er. Hrafnkell Tjörvi Stefánsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, hefur langa reynslu af því að ræða við fólk sem veltir fyrir sér eigin kynhneigð og finnst þægilegt að nota símann til að spyrja og fræðast um líf og tilfinningar samkynhneigðra áður en lengra er haldið. Eins færist það í vöxt að aðstandendur notfæri sér símaráðgjöfina vegna þeirra fjölmörgu spurninga sem geta vaknað. Hrafnkell veitir einnig upplýsingar um réttindi samkynhneigðra og leitast við að leiðbeina þeim sem brotið er á vegna kynhneigðar. Hann svarar í síma 5527878        á skrifstofutíma og fer með öll samskipti sem trúnaðarmál. Símtölin leiða oft til þess að viðkomandi pantar viðtal hjá félagsráðgjöfum Samtakanna ´78. Þeirri ráðgjöf sinna þær Anni G. Haugen og Guðbjörg Ottósdóttir og nýtur starf þeirra mikilla vinsælda. Þær bjóða upp á klukkutíma viðtal að jafnaði og er sú þjónusta ókeypis. Einungis er hægt að panta tíma hjá félagsráðgjöfunum hjá framkvæmdastjóra félagsins á skrifstofutíma. Með öll samskipti við það fólk sem leitar þjónustunnar er að sjálfsögðu farið sem trúnaðarmál.

Fræðsla samtakanna 78 fyrir skóla

Samkynhneigðir nemendur: Í hverjum skóla eru nemendur sem eru að reyna að horfast í augu við kynhneigð sína en hafa fæst sagt öðrum frá því og hafa ekki vogað sér að fjúfa einangrun sína og nálgast homma eða lesbíur á sínum aldri. Þeir taka glósur og fordóma í garð lesbía og homma yfirleitt afar nærri sér, jafnvel svo að námsgetu þeirra og þroska er stefnt í voða, og hættir gjarnan til að oftúlka illkvittnar athugasemdir í garð samkynhneigðra á viðkvæmu skeiði ævinnar. Mörg af þessum nemendum hafa síðar sagt að fundirnir með gestunum frá Samtökunum ´78 hafi opnað þeim glugga út í lífið þegar þeim leið hvað verst, ein í glímu sinni við kynhneigðina.
Börn samkynhneigðra: Í öllum skólum eru börn sem eiga samkynhneigða foreldra, lesbíu að móður eða homma að föður. Þessi hópur gleymist oft þegar fjallað er um ólíkar fjölskyldugerðir í skólastarfi. Þegar aldrei er minnst á þá fjölskyldugerð sem þau þekkja best, fyllast þau vanmetakennd og sú tilfinning er slæm að það sem þeim er kærast sé nokkuð sem ekki eigi eða megi tala um. Fyrir þau eru fundirnir mikilvægur stuðningur og styrkir sjálfsmatið. Svipað gildir um nemendur sem eiga samkynhneigð systkini, ættingja, afa eða ömmur.
Gagnkynhneigðir nemendur: Fátt er mikilvægara en að ræða þann þátt á skólafundum hvernig gagnkynhneigðir nemendur geta stutt félaga sína sem eru lesbíur eða hommar. Fæst þeirra hafa hugleitt það fyrr en þeim er bent á það að ógætileg orð geta valdið félögum þeirra mikilli angist. Á fundum fá þau stuttar en greinargóðar leiðbeiningar um það hvernig maður styrður sinn besta vin eða sína bestu vinkonu ef í ljós kemur að viðkomandi er fyrir sitt eigið kyn til ásta.
Samtökin ´78 bjóða upp á einnig upp á fræðslu um líf og tilveru samkynhneigðra fyrir kennara, námsráðgjafa og aðra starfsmenn í grunnskólum og framhaldskólum um allt land.

UNGLIÐAHÓPUR - skoða
Ungliðahópurinn starfar innan Samtakanna ´78. Hann er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14–20 ára og tilgangur hans er að skapa og styrkja félagsleg tengsl milli þeirra. Við hittumst vikulega, hvert sunnudagskvöld og gerum eitt og annað skemmtilegt saman og andrúmsloftið er mjög svipað og í venjulegum félagsmiðstöðvum eða nemendafélögum.
Fyrst og fremst viljum við kynnast hvert öðru, búa til góðan félagsskap og mynda vináttubönd. Þá bjóðum stundum til okkar gestum úr þjóðfélaginu til að ræða spennandi málefni, stundum höfum við boðið foreldrum okkar í heimsókn, og við höldum videókvöld, förum í útilegur og höldum árshátíð og margt fleira. Það er okkar sjálfra að móta dagskrána með umsjónarfólki hópsins. Einnig tökum við þátt í starfi Samtakanna ´78, m.a. höfum við sagt frá lífi okkar á fræðslufundum í skólum, og við tökum virkan þátt í undirbúningi Hinsegin daga. Það getur tekið hálft ár að búa til gott atriði í gleðigönguna. Svo vinnum við að gerð kvikmyndar um okkur sjálf.

 

 

Forvarnir

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi