Drög að endurskoðaðri skólastefnu
Á fundi bæjarstjórnar 17. september 2009 var samþykkt að hefja vinnu við endurskoðun heildstæðar skólastefnu Garðabæjar.
Skipaður var fimm manna stýrihópur til að vinna að endurskoðuninni.
Í honum voru: Páll Hilmarsson, Lúðvík Steinarsson, Ásdís Olsen, Hjördís Eva Þórðardóttir, og Stefán Veturliðason ásamt starfsfólki fræðslu- og menningarsviðs.
Stýrihópurinn lagði áherslu á að fá fram skoðanir og áherslur sem flestra sem lifa og starfa í skólasamfélaginu og leitaði í því skyni eftir áliti og tillögum frá nemendum, foreldrum og starfsfólki skóla. Einnig var haldið opið skólaþing þar sem unnið var í hópum að áherslum fyrir hvert skólastig.
Þau drög sem nú eru kynnt voru unnin með hliðsjón af þeim áherslum sem fram komu á skólaþinginu og í hugarflæði nemenda, foreldra og starfsfólks skóla.
Garðbæingar eru hvattir til að senda inn ábendingar vegna skólastefnunnar fyrir 23. apríl nk.
Drög að endurskoðaðri skólastefnu Garðabæjar
Niðurstöður hugarflugs nemenda, foreldra og starfsfólks skóla