Götustjórar
Götustjórar gegna lykilhlutverki í nágrannavörslunni. Til að nágrannavarslan sé virk þarf að hafa að minnsta kosti einn götustjóra í hverri götu.
Götustjóri er eins konar verkstjóri nágrannavörslunnar í sinni götu. Hann er tengiliður götunnar við lögregluna og Garðabæ, hann hefur lista yfir íbúa í götunni og hann sér um að upplýsa nýja íbúa um nágrannavörsluna. Æskilegt er að götustjóri boði til íbúafundar eða götugrills einu sinni á ári. Hægt er að hafa þá reglu að velja nýjan götustjóra við það tilefni. Þannig verða fleiri virkir og meðvitaðir um nágrannavörsluna.
Garðabær boðar götustjóra til fræðslufundar einu sinni til tvisvar á ári.
Gögn fyrir götustjóra
Nágrannavarsla og hlutverk götustjóra
Pétur Guðmundsson afbrotafræðingur.
Nokkur góð ráð um nágrannavörslu
Innbrot í Garðabæ 1. jan. - 31. okt. 2009-2011
Glærur frá fundi með götustjórum í nóvember 2011.