16 – 20 ára ungmenni
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Bókasafn Garðabæjar leggi áherslu á að ungt fólk í Garðabæ fái ætíð bestu þjónustu og fræðslu sem völ er á í tengslum við lestur
Leiðir:
- Gefa ungu fólki kost á að sækja hraðlestrarnámskeið í Garðabæ.
- Tryggja aðgang að fjölbreyttu lestrarefni og gagnasöfnum sem viðkemur lestri og ritun.
- Koma til móts við þarfir ungmenna með annað móðurmál en íslensku og barna sem dvalið hafa langtímum erlendis.
- Ýta undir notkun ýmiss hugbúnaðar tengdum lestri og ritun í samvinnu við Bókasafn Garðabæjar.
- Leggja áherslu á samstarf bókasafns Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Bókasafns Garðabæjar um bókmenntakynningar fyrir nemendur og kennara.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Bókasafn Garðabæjar leiti fjölbreyttra leiða til að auka lestrarhæfni og viðhalda lestraráhuga ungs fólks.
Leiðir:
- Skipuleggja samkeppni í lestri og ritun í samráði við Bókasafn Garðabæjar.
- Hanna bókavef í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ þar sem birtar verða umsagnir um bækur og bókablogg.
- Bæta aðstöðu í lessölum bókasafna með því að skapa næði og bjóða þar upp á þráðlausa nettengingu.
- Auka framboð tímarita sem höfða til ungs fólks.
- Gefa ungu fólki tækifæri til að lesa fyrir aðra svo sem nemendur í leik- og grunnskólum og eldri borgara.
- Skipuleggja eins konar ritsmiðju á Bókasafni Garðabæjar þar sem ungt fólk hefur aðstöðu til að setjast niður og skrifa.
- Stuðla að útgáfu ritsmíða eftir ungt fólk í Garðabæ.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ komi til móts við þau ungmenni sem glíma við lestrarörðugleika af einhverju tagi.
Leiðir:
- Greina vandamál hvers og eins og bregðast við á viðeigandi hátt í samráði við fagaðila og foreldra.
- Leiðbeina ungu fólki um leiðir sem hægt er að fara til að bæta lestrarhæfni.