Kannabis
Kannabisefni - síða 1 - skoða
Hass - síða 1 - skoða
Einkenni
Hávært tal, þanin ljósop, fliss og kátína, ruglað tímaskyn, brenglað svefnmynstur, hæg viðbrögð og samhæfingarskortur, blóðhlaupin augu, ógleði, þurr munnur, þvoglumælgi.
Gefið gaum að
Brenndur álpappír, lykt líkt af brenndum hampi, sundurskornar sótugar plastflöskur (hasspípur, vatnspípur)
Hætta
Námsgeta minnkar, þunglyndi og aðgerðarleysi , skert minni. Helmingur neytenda leiðist útí neyslu annara vímuefna.
Hvað gera
Ræða vel við barnið og skoða stöðu þess í skóla, í frístundum og heima. Breytingar á hegðun, á vinum geta bent til neyslu.
Taka eiturprufu - fæst í apótekinu. Mikilvægt að nota annað hvort multi prufu sem mælir nokkrar tegundir vímuefna eða THC prufu fyrir Kannabis.
Kannabis sest á fitulög líkamans og getur verið í líkama barns í 4 - 6 vikur eftir neyslu. Það er ekki rétt að - ég fékk mér bara einn smók eða það að óbeinar reykingar - vinur minn var að reykja - geti orðið til þess að hass mælist í líkama barnsins. Jákvætt sýni þýðir að barnið hefur reykt hass.
Ef niðurstaðan er jákvæð - sem sagt að barnið sé í neyslu þá hafa samband við unglingaráðgjafa á Fjölskyldusviði til að fá frekari ráðleggingar. Eða unglingadeild SÁÁ eða sjálfstætt starfandi sérfræðinga sem vinna með vímuefnavanda barns.
Dæmi um efni
Hass, Sinsemilla, Ganja, Hassolía, Marijúana, THC